| |
|
Finnland
8.12.2003: Tillaga um að allar sjónvarpssendingar skuli vera stafrænar frá og með árinu 2007
Þingmannastarfshópurinn um sjónvarpsstarfsemi leggur til að allar jarðlægar sjónvarpssendingar skuli vera á stafrænum grunni eftir 31. ágúst 2007, segir í fréttatilkynningu frá samgönguráðuneytinu.
"Miðað er við að allir Finnar eigi tímanlega fyrir breytinguna að hafa sveigjanlegan aðgang að stafrænni sjónvarpsþjónustu á sanngjörnu verði. Starfshópurinn leggur fram ósk um að uppbyggingu stafræns dreifingarnets verði hraðað svo að netið nái til alls landsins fyrir árið 2005. Fram að þessu hefur ætlunin verið á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 1999 að breytingin ætti að eiga sér stað árið 2006.
Starfshópurinn leggur áherslu á að kostnaðarsamt verður að beitt tvenns konar sendingartækni samtímis. Því væri æskilegt að nýta fjármagnið í að auka dagskrárframboðið og gera það fjölbreytilegra", segir í fréttatilkynningunni.
Heimild: Samgönguráðuneytið
Fara efst á síðuna
|
| |
|
Ísland
1.12.2003: Norðurljós gera tilraunir með sjónvarpsútsendingar um gervitungl
Að undanförnu hafa Norðurljós gert tilraunir með sjónvarpsútsendingar um gervitungl. Tilgangurinn er m.a. að leita hagvæmrar lausnar til að dreifa sjónvarpsdagskrá Norðurljósa um allt land. Erlendir gervihnattaeigendur koma að verkefninu og ef niðurstöðurnar lofa góðu kemur vel til greina að velja þessa leið.
Sigurður G. Guðjónsson, forstjóri Norðurljósa, segir að málið sé enn á byrjunarstigi, en samt ljóst að stafrænar útsendingar (digital) hefjist hér í náinni framtíð. Öll uppbygging Norðurljósa, á síðustu árum hefur tekið mið af því.
Heimild: Nordurljós
Fara efst á síðuna
|
| |
|
Noregur
13.11.2003: Helmingur norskra heimila er tengdur Netinu
Tveir þriðju heimila í Noregi höfðu aðgang að einkatölvu á öðrum ársfjórðungi 2003, segir Hagstofa Noregs. Um helmingur heimilanna hafði aðgang að Netinu. Helmingur þjóðarinnar notar tölvu á hverjum degi, en um 40 af hundraði nota Netið a.m.k. einu sinni daglega.
"Almennt hafa fjölskyldur með börn að langmestu leyti aðgang að upplýsinga- og samskiptatækni. Hvað varðar fjölda heimila sem hafa aðgang að tölvu og Netinu þá eru barnafjölskyldur annars vegar 21 og hins vegar 25 prósentustigum yfir fjölskyldum án barna.
Einnig er almennara að tölva og netaðgangur sé í fjölskyldum sem hafa hærri tekjur. Um 95 prósent heimila með heildartekjur yfir NOK 600.000 áttu tölvu en aðeins 46 prósent heimila sem hafa heildartekjur innan við NOK 200.000 á ári. Samsvarandi tala fyrir Netið var 87 prósent í efri tekjuhópnum og 32 prósent í þeim lægri", segir meðal annars í fréttatilkynningunni.
Heimild: Hagstofa Noregs
Fara efst á síðuna
|
| |
|
Svíþjóð
1.12.2003: Must carry-skyldan eftir breytingu jarðlæga netsins í stafræna tækni
Hljóðvarps- og sjónvarpslaganefndin hefur skilað áfangaskýrslku til Marita Ulvskog menningarmálaráðherra; Must carry (SOU 2003:109).
"Verkefni nefndarinnar hefur við að athuga hvaða stjórnarskrárbreytingar séu nauðsynlegar til þess að tryggja að þeir sem búa í fasteignum með kapalkerfi hafi aðgang að grunnframboði sjónvarps jafnvel eftir flaumrænum sendingum hefur verið hætt", segir í fréttatilkynningunni.
Nefndin leggur til að skylt eigi að vera að senda tiltekna sjónvarpsþætti í kapalkerfum eftir að flaumrænum sendingum hefur verið hætt Breyting í stafræna tækni gerir að verkum að þeim sjónvarpsþáttum fjölgar sem unnt er að senda áfram ókeypis Framsendingar-skyldan skal því annars vegar ná til þátta sem SVT og UR senda, hins vegar til dagskrárþjónustu sem aðrar stöðvar senda", segir meðal annars í fréttatilkynningunni.
Heimild: Menningarmálaráðuneytið
Fara efst á síðuna
|
| |
|
Norðurlöndin
5.12.2003: Nýr rektor
Birgir Kruse, 46 ára, verður nýr rektor Norrænu blaðamannamiðstöðvarinnar í Árósum. Hann var áður upplýsingafulltrúi Norræna hússins í Færeyjum. Stjórn Norrænu blaðamannamiðstöðvarinnar var sammála um ráðninguna og þann 4. desember var ráðningin staðfest af embættismannanefnd um norrænt menningarsamstarf.
Birgir Kruse hefur í mörg ár unnið útvarpsþætti fyrir færeyskt útvarp og hefur einnig verið menningarritstjóri á dagblaðinu Sosialurin. Hann tekur við af Stein-Ove Grønsund frá Noregi. Norræna blaðamannamiðstöðin stendur fyrir námskeiðum á Norðurlöndum, í Eystrasaltsríkjunum og í norðvestur-Rússlandi. Um 800 blaðamenn taka þátt í námskeiðunum árlega. Aðalnámskeiðið sem er átta vikur á lengd verður haldið í 47. skipti árið 2004.
Norræna blaðamannamiðstöðin (http://www.njc.dk/)
Norræna húsið í Færeyjum (http://www.nlh.fo/)
Heimild: Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefndin
Fara efst á síðuna
|
| | | | | |