Danmörk
19.6.2000: Sænsk framleiðslufélög sjónvarpsefnis taka stóra hluta af danska markaðnum
"Svíar eru vel á veg komnir að taka yfir framleiðslu dansks sjónvarpsefnis", segir í Politiken.
"Á meðan verið var að ljúka smíði Eyrarsundsbrúarinnar hafa einkum þrjú fjársterk félög að handan náð til sín mörgum hinna stóru pantana frá dönsku sjónvarpsstöðvunum fjórum. Sænsku félögin hafa skapað meiri þrengingar í grein sem átti þegar undir högg að sækja", segir Preben Sepstrup fjölmiðlafræðingur við Politiken.
Um er að ræða Strix Television, en móðurfyrirtæki þess er sænska fjölmiðlasamsteypan Kinnevik, og auk þess Wegelius sjónvarp Bonnier-samsteypunnar og Jarowskij sem er í einkaeigu.
"Enn frekar harðnaði á dalnum í framleiðslugreininni í síðustu viku þegar DR tilkynnti að á næsta ári væri ætlunin að kaupa mjög fáa þætti úti í bæ. Stöðin er gagnrýnd fyrir að hvetja framleiðslufélögin til að senda inn í löngum bunum bestu hugmyndir sínar að þáttum í það sem er nú nefnt 'gerviútboð'. Einnig TV 2 er sakað um að kaupa ekki nóg frá einkafélögunum" segir í Politiken.
Heimild: Politiken
18.5.2000: Hvaða skilning leggur mennningarmálaráðherra í "almenningsþjónustu" (public service)?
"Í mínum huga er almenningsþjónusta þeir gildisþættir sem stjórna samfelldu sjónvarps- og útvarpskerfi í því skyni að þjóna almenningi" sagði Elsebeth Gerner Nielsen, mennningarmálaráðherra Dana í ræðu 18. maí sl. í Útgefendaklúbbnum (Publicistklubben).
Fundarefnið var "Hvaða skilning leggur þú í almenningsþjónustu?"
Mennningarmálaráðherrann sagði ennfremur: "Um er að ræða gildisþætti sem í ljósi menningarpólitísku stefnumiða minna hafa níu eftirsóknarverð sérkenni:
1. að vera viðmiðun fyrir allan almenning - okkur öll - og félagslegur samþættingarþáttur
2. að koma á fót vettvangi fyrir opinbera umræðu
3. að senda óhlutdrægar og hlutlausar fréttir og upplýsingar
4. að senda fjölbreytta dagskrá bæði á dönsku og öðrum tungumálum
5. að þróa dagskrárefni sem höfðar til bæði almennings og minnihlutahópa
6. að tryggja nýsköpun í eigin framleiðslu
7. að fjölga valkostum með því að bjóða þætti sem alla jafna er ekki í boði í fjölmiðlum sem reknir eru í viðskiptaskyni
8. að tryggja vettvang fyrir tjáningarfrelsið og fyrir þróun lýðræðis og danskrar menningar
9. að tryggja börnum, fötluðum, nýbúum og öðrum minnihlutahópum gæðasjónvarpsefni
Með öðrum orðum lýtur þetta að því að tengja okkur saman sem þjóð og veita okkur sameiginlega innsýn.
Um þig,...... mig......og okkur í sameiningu.
Þetta hefur verið rauði þráðurinn í starfi mínu að fjölmiðlasamkomulaginu", sagði mennningarmálaráðherra Dana meðal annars.
Heimild: Menningarmálaráðuneytið